Um félagið
Félag íslenskra parketmanna var stofnað 11.nóvember 2003
Tilgangur félagsins er að viðhalda þeim gæðastaðli sem þarf að vera til staðar þegar unnið er við parketlagnir, slípun og lökkun. Í félaginu er einvala lið manna sem hafa haft aðalatvinnu sína af því að vinna við parket undanfarna áratugi. Inngönguskilyrði í félagið er að viðkomandi aðili geti sýnt fram á fagleg vinnubrögð og góð tök á vinnu við parket.Það er eitt af markmiðum félagsins að veita félagsmönnum aðhald í að viðhalda snyrti- og fagmennsku.
Það er ekki tilviljun að slíkt félag skuli stofnað nú þegar nýir verktakar taka til starfa nær mánaðarlega og úrvalið af misgóðu parketi og fylgiefnum eykst hratt. Þá er krafan um færni fagmanna nauðsynleg til að tryggja vönduð vinnubrögð.
Félagsmenn hafa allflestir iðnréttindi í tréiðnaði, hafa mikla reynslu og þekkingu í lagningu og frágangi á öllum tegundum parkets.
Fáðu viðurkennda fagmenn í verkið
það margborgar sig!



Tilgangur félagsins er að viðhalda þeim gæðastaðli sem
þarf að vera til staðar þegar unnið er við parketlagnir, slípun og lökkun.

